Forseti Íslands sendir foreldrum Birnu samúðarkveðjur: „Orð fá ekki linað hina miklu sorg“

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sendi foreldrum Birnu Brjánsdóttur samúðarkveðjur í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsetanum.

„Ég hef í dag sent foreldrum Birnu Brjánsdóttur innilegar samúðarkveðjur,“ segir Guðni í tilkynningunni.

Orð fá ekki linað hina miklu sorg en minningin um Birnu, þessa ungu og björtu stúlku, sem var tekin frá okkur í blóma lífsins, mun ætíð lifa með íslenskri þjóð.

Auglýsing

Guðni vill koma á framfæri þökkum til björgunarsveitarfólks, lögreglu og annarra sem leituðu að Birnu og rannsökuðu hvarf hennar. „Í samstöðu og einhug eigum við Íslendingar mikinn styrk,“ segir hann.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing