Fréttakona hættir í beinni: „Fokk it! — ég er hætt“

Charlo Greene, fréttakona KTVA í Alaska, sagði starfi sínu lausu í beinni útsendingu í gær. Þá lýsti hún því yfir að hún væri eigandi kannabisklúbbs sem hún hafði sjálf verið að fjalla um.

Greene var orðin þreytt á fréttaflutningi vinnuveitanda síns og sagðist ætla að nota orku sína í að berjast fyrir lögleiðingu kannabisefna í Alaska. Hún hafði fjallað um kannabisklúbbinn Alaska Cannabis Club án þess að upplýsa áhorfendur um eigendatengsl sín.

Í myndbandinu hér fyrir neðan sést þegar hún afhjúpar sjálfa sig og endar á orðunum: „Fuck it, I quit.“

Viðbrögð (fyrrverandi) samstarfskonu hennar eru stórkostleg:

Auglýsing

læk

Instagram