Frumsýningargestir Lof mér að falla deila dagbókarfærslu Kristínar Gerðar: „Því miður enn ein týnd sálin“

Lof mér að falla, nýjasta kvikmynd Baldvins Z, var frumsýnd við hátíðlega athöfn í gærkvöld. Viðtökur frumsýningargesta hafa verið gríðarlega góð hafa fjölmargir deilt á samfélagsmiðlum broti úr dagbók Kristínar Gerðar, sem var varpað var á tjaldið áður en sýningin hófst í gær.

Kristín Gerður glímdi við fíknisjúkdóm og svipti sig lífi aðeins 31 árs gömul. Baldvin sagði frá í Fréttablaðinu á dögunum að saga hennar hafi verið kveikjan að myndinni.

Lof mér að falla fjallar um vináttu og fíkniefnaneyslu tveggja unglingsstúlkna. Kvikmyndin byggir á raunverulegum atburðum og reynslu stúlkna af hörðum heimi fíkniefna.

Kristín Gerða hélt dagbók sem Baldvin Z og Birgir Örn Steinarsson, handritshöfundar myndarinnar, fengu leyfi aðstandenda hennar til að lesa. Þar fengu þeir innsýn í forsögu og hræðilega afleiðingar fíkniefnaneyslu.

Myndin fer í almennar sýningar á föstudaginn.

Auglýsing

læk

Instagram