Gísli Pálmi tekur upp með Ghostface Killah úr Wu-Tang Clan

Rapparinn Gísli Pálmi tók upp tónlist með rapparanum Ghostface Killah í hljóðveri í Reykjavík í gær. Þetta kemur fram á fréttavefnum Iceland Monitor, sem er nokkurs konar mbl.is á ensku.

Á Iceland Monitor kemur fram að Gísli Pálmi hafi í gær sent út Snapchat af upptökunum. Þá birti Gísli þessa mynd í gær af Ghostface Killah í peysu merktri Glacier Mafia, sem er hópurinn hans.

https://instagram.com/p/4SbfHmNj5V/

Ghostface Killah er í hljómsveitinni Wu-Tang Clan sem kom fram á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í Laugardal um helgina. Gísli Pálmi kom einnig fram á hátíðinni.

Ghostfacd Killah hefur áður komið til landsins. Hann kom fram á tónleikum í tengslum við Reykjavik Fashion Festival í apríl árið 2011.

 

Auglýsing

læk

Instagram