Gunnar Nelson berst við Santiago Ponnznibbio í júlí

Gunnar Nelson mun berjast við Argentínumanninn Santiago Ponnznibbio í Glasgow í júlí. Bardagi þeirra verður aðalbardagi kvöldsins. Þetta kemur fram á Vísi.

Argentínumaðurinn hefur barist 27 sinnum og unnið 24 þeirra bardaga. Hann er í þrettánda sæti á styrkleikalista UFC í veltivigt en Gunnar er í því níunda.

Sjá einnig: Glæsilegur sigur hjá okkar manni! Sjáðu Gunnar Nelson klára Alan Jouban

Þetta verður annar bardagi Gunnars á árinu og stefnir hann að því að ná þeim þriðja fyrir lok árs. Gunnar lagði Alan Jouban á bardagakvöldi UFC í London í Bretlandi í 18. mars. Þegar 46 sekúndur voru liðnar af annarri lotu sigraði Gunnar Jouban með hengingartaki.

Auglýsing

læk

Instagram