Gunnar Nelson býst við því að fá bardaga í desember

Bardagakappinn Gunnar Nelson býst við að fá bardaga á UFC 232 sem fram fer í Las Vegas 29. desember næstkomandi. Þetta sagði Gunnar í þættinum Búrið á Stöð 2 Sport.

Þó svo að Gunnar telji sig fá bardaga þetta kvöld segist hann ekki vita hver andstæðingurinn verður. Til stóð að berjast við Jorge Masvidal en nú er ljóst að svo verður ekki þar sem hann hefur fært sig í annan þyngdarflokk.

Gunnar meiddist á hné í apríl á þessu ári og neyddist til að hætta við fyrirhugaðan bardaga gegn Neil Magny á UFC bardagakvöldinu í Liverpool í maí. Í kjölfarið fór Gunnar í aðgerð á liðþófa og er nú byrjaður að æfa á fullu. 

Auglýsing

læk

Instagram