Gunnar Nelson meiddur, berst ekki í Belfast í nóvember eins og til stóð

Bardagakappinn Gunnar Nelson er meiddur og berst því ekki við Dong Hyun Kim á bardagakvöldi UFC í Belfast 19. nóvember. Þetta kemur fram á Vísi.

Óvíst er hvort Gunnar keppi aftur á þessu ári en hann keppti síðast í maí. Þá vann hann Albert Tumenov.

Vísir greinir frá því að sigur hefði skotið Gunnari inn á topp tíu lista UFC í sínum þyngdarflokki. Í staðinn berjast Gegard Mousasi og Uriah Hall í aðalbardaga kvöldsins í Belfast.

Auglýsing

læk

Instagram