Gunni Nelson – Pabbinn eins og taugahrúga fyrir bardaga

Feðgarnir Gunni og Halli Nelson eru nýjustu gestirnir í podcasti Sölva Tryggvasonar. Þar fara þeir feðgar yfir ferilinn hjá Gunna, samskiptin við Conor Mcgregor og margt fleira. Haraldur, pabbi Gunna, segir að strákurinn hafi notað tækifærið og hætt í Menntaskólanum við Sund þegar hann var í vinnuferð erlendis.

,,Hann var alltaf fínn námsmaður og svona, en hann notaði tækifærið og hætti í menntaskóla á meðan ég var úti og tilkynnti mér það þegar ég kom heim….það var haldinn fjölskyldufundur í kjölfarið,“ segir Halli.

Hann hafi strax fundið að stráknum væri alvara með þessu og ástríðan fyrir íþróttinni væri mjög mikil og því hafi ekkert annað komið til greina en að styðja við bakið á honum. Gunni segir að það sé alls ekki sjálfgefið að foreldrar sjái hlutina með sömu augum og pabbi hans og mamma.

,,Ég hugsa að það væru margir feður sem teldu að þetta væri tómt rugl að hætta í skóla til þess að fara að láta berja sig inni í einhverju búri. Gunni vill meina að rektor Menntaskólans við Sund eigi í raun stóran hluta í þessarri ákvörðun, þar sem hann fékk hann til að hugsa sinn gang.

,,Hann boðaði mig á fund af því ég var búinn að mæta svo illa, af því ég var bara alltaf á æfingum og eitthvað svona. Mér gekk svo sem ágætlega og náði prófum þótt ég væri ekkert að sinna þessu. Á fundinum segir hann: ,,Þú þarft að fara að hugsa þinn gang vinur minn og ákveða hvað þú vilt gera“ og ég man að ég hugsaði að þetta væri bara hárrétt hjá honum og ég sagði honum að ég væri hættur.“

Halli segist yfirleitt vera taugahrúga rétt áður en Gunni fer inn í búrið fyrir bardaga, en það lagist svo um leið og bardaginn byrjar.

,,Ég er náttúrulega alltaf á barmi taugaáfalls þarna á hliðarlínunni…ég er miklu stressaðri en hann. Auðvitað er þetta barnið mitt og ég viðurkenni það fúslega að ég er mjög taugastrekktur fyrir bardaga. En svo er það þannig þegar bardaginn byrjar að þá er maður svo mikið inni í búrinu með honum að það dregur úr stressinu.“

Í viðtalinu fara þeir feðgar líka yfir sambandið við Conor Mcgregor og Dana White forseta UFC. Halli Nelson þurfti að skrifa íslenskum yfirvöldum bréf til að Conor fengi að koma til Íslands og halda félagsbótunum sem hann var á:

,,Ég skrifaði bréf til að fá hann hingað heim. Ég  þurfti að skrifa bréf út til Írlands til að færa rök fyrir því að hann væri ofboðslega efnilegur íþróttamaður, svo hann fengi leyfi til að fara úr landi af því hann var á félagslegum bótum.“

Gunni og Conor eru í mjög reglulegu sambandi og Gunni segir að sá írski virki í góðu standi núna og hann æfi sem aldrei fyrr. Hann var í sambandi við Conor áður en hann fór til New York fyrir tveimur árum, þar sem hann endaði fyrir dómi eftir að hafa ráðist á rútu með bardagamönnum frá UFC.

,,Ég man eftir þessu þegar þeir voru að fara í þetta ,,Mission“, ekki það að ég var aldrei að fara að taka þátt í þessu…við erum búnir að þekkjast síðan við vorum 18 ára og hann veit að ég væri aldrei að fara að taka þátt í einhverju svona. Hann er getur verið rosalega hvatvís og tekið ákvarðanir sem hann sér svo hrikalega eftir.“

Forseti UFC var upphaflega ekki á því að leyfa Gunna að ganga inn með tónlist frá Hjálmum

,,Þegar Gunni átti fyrsta bardagann sinn í UFC þá er það þannig að Dana White fer yfir öll lögin og hann sagði bara nei við Hjálmum og fannnst það ekki nógu rokkað og hann vildi að við myndum senda honum 3-4 önnur lög og við sendum honum bara íslensk lög, Bubba og Quarashi og eitthvað sem Gunni valdi.“

,,Við héldum að það myndi heyrast eitthvað allt annað lag, en síðan þegar við erum að labba inn þá kom bara lagið með Hjálmum, sem var alltaf lagið sem við ætluðum upphaflega að velja.“

Í viðtalinu fer Sölvi yfir það með feðgunum hvernig öll þessi vegferð í UFC hefur verið, hæðirnar, lægðirnar, sambandið við Conor McGregor og margt margt fleira

Viðtalið í heild má sjá hér að neðan:

Auglýsing

læk

Instagram