Helgi Hrafn vitnaði í Jónas Sig í Eldhúsdagsumræðum: Horfðu á ræðuna sem allir eru að tala um

Helgi Hrafn Gunnlaugsson, þingflokksformaður Pírata, sagði í eldhúsdagsumræðum á Alþingi í kvöld að annar hver dagur á Alþingi væri eins og lokasena í þætti af Game of Thrones.

Maður veit það eitt með vissu að líklega sé eitthvað fullkomlega hræðilegt í þann mund að eiga sér stað.

Sjáðu ræðu Helga Hrafns hér fyrir neðan. Hún vakti mikla athygli en hann gagnrýndi störf þingsins harðlega. Notendur á Twitter voru allavega ánægðir.

Helgi Hrafn lauk ræðu sinni á því að vitna í lag Jónasar Sigurðssonar, Hleypið mér út úr þessu partíi, og sagði svo: „Ég hef fengið nóg af þessu rugli. Tökum þetta upp á annað plan!“

Ræðu Helga Hrafns má sjá hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram