Hera Hilmars í nýrri þáttaröð Apple

Íslenska leikkonan Hera Hilmarsdóttir mun fara með eitt af hlutverkunum í nýrri þáttaröð kallast See. Það er stórfyrirtækið Apple sem framleiðir þættina. Greint er frá þessu á bandarísku vefsíðunni Deadline.

Sjá einnig: Hera Hilmars í nýrri þáttaröð framleiddri af Amazon

Francis Lawrence leikstýri þáttunum og  Steven Knight skrifar handritið. Þeir hafa báðir getið sér gott orð í Hollywood svo ljóst er að verkefnið er stórt.

Meðal þeirra sem leika í þættinum með Heru eru Sylvia Hoeks, Nesta Coope, Alfre Woodard, Yadira Guevara-Prip og Archie Madekwe.

Auglýsing

læk

Instagram