Hera Hilmarsdóttir í aðalhlutverki í nýjustu stórmynd Peters Jackson

Hera Hilmarsdóttir fer með aðalhlutverkið í kvikmyndinni Mortal Engines. Peter Jackson, leikstjóri Lord of the Rings þríleiksins, er handritshöfundur og framleiðandi myndarinnar sem er leikstýrt af Christian Rivers. Þetta kemur fram á vef Variety og Vísir greindi einnig frá.

Hera fer með hlutverk Hester Shaw í kvikmyndinni sem er byggð á samnefndri bókaröð eftir Philip Reeve og gerist í framtíðinni. Borgir jarðarinnar eru orðnar að einhvers konar vélum sem ferðast um og berjast um auðlindirnar sem eru eftir en jörðinni sem hefur verið lögð í eyði.

Hera hefur verið að gera það gott en hún fór með stórt hlutverk í þáttunum Da Vinci’s Demons ásamt því að fara með hlutverk í myndinni The Ottoman Lieutenant ásamt Josh Hartnett og Ben Kingsley.

Auglýsing

læk

Instagram