Hlín Einars dómari í spurningaþætti Steinda Jr. á Stöð 2: „Eins og Gettu betur, samt ekki“

Grínistinn Steindi Jr. stýrir spurningaþættinum Ghetto betur sem hefst á Stöð 2 í maí. Hlín Einarsdóttir verður dómari í þættinum, Kalli Bjarni stigavörður og María Guðmundsdóttir, sem hefur slegið í gegn í sketsum Steinda, verður plötusnúður.

Samkvæmt frétt Vísis verður fyrirkomulag þáttarins á þá leið að tveir fulltrúar frá hverju bæjarfélagi mæta og spreyta sig á vel völdum spurningum. Liðin þurfa einnig að leysa þrautir og fá einnig fjölbreytt verkefni, eins og til dæmis að stela úr matvörubúðum.

Auglýsing

Steindi hyggst einnig skoða bæjarfélögin sem eiga fulltrúa í þættinum og kynna sér aðrar hliðar á þeim.

„Ég get lofað því að MR er ekki að fara að vinna þessa keppni,“ segir Steindi í samtali við Nútímann. Hann fór ekki í Gettu betur sjálfur á sínum tíma en kláraði þó MK — ekki Menntaskólann í Kópavogi heldur tölvuleikinn Mortal Kombat.

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing