Innsýn í glæsihýsi Kylie Jenner sýnir hvað hún er ógeðslega rík

Það er ekkert sérstaklega leiðinlegt að vera Kylie Jenner þessa dagana. Viðskiptaveldi hennar blómstrar og svo eignaðist hún litla stelpu fyrir ekki svo löngu.

Vefmiðillinn Buzzfeed tók saman færslu í dag sem sýnir glögglega að Kylie okkar er ekki bara rík. Hún er m0ldrík. Allavega miðað við lífsstílinn sem hún þreytist ekki á að sýna okkur á Instagram. Skoðum þetta aðeins betur.

Maður er ansi ríkur ef maður ferðast um í einkaþotum. Við sem sættum okkur við þröngu Wizz Air-sætin vitum það

View this post on Instagram

bay

A post shared by Kylie ✨ (@kyliejenner) on

Það er líka ágætis mælikvarði á ríkidæmi að kaupa svona bíla í sama lit. Algjör hausverkur fyrir bílasala en annar dagur á skrifstofunni hjá Kylie

View this post on Instagram

just for the summer ?

A post shared by Kylie ✨ (@kyliejenner) on

Þarna er hún í frí. Af svipnum að dæma er hún að hugsa: „Æ já, þarna lagði ég snekkjunni minni“.

Fátt segir „ég veit ekki aura minna tal“ betur en sjálfa fyrir framan fornbíl sem kostar meira en allar launahækkanirnar sem VR fer fram á í næstu kjarasamningum samanlagt

Kylie sýndi aðdáendum sínum inn í húsið sitt á dögunum og Buzzfeed var svo sniðugt að grípa myndirnar og sýna okkur hinum. Reynum nú að hætta ekki að elska 50 fermetra holurnar okkar á meðan við skoðum þessar myndir, ókei?

Byrjum á rafdrifnum gluggatjöldum

Og auðvitað er sundlaugin í garðinum svo stór að það mætti skrásetja ólympíulágmörk í henni

Körfubolta- og tennisvöllur er staðlbúnaður fyrir unga milljarðamæringa

Og vel snyrt limgerði. (Haha limgerði)

Það er líka nauðsynlegt að vera með hlið sem opnast hægt svo geggjuðu bílarnir í stæðinu birtist einn af öðrum. Eins og í tónlistarmyndbandi. Áfram Kylie!

En munum gott fólk að vera ánægð með það sem við eigum. Hvort annað ❤️

Auglýsing

læk

Instagram