Íslendingar búnir að kaupa Boozt-inneignarkort fyrir 100 milljónir í janúar

Þessi frétt er röng! sorrí. Hér er leiðrétting.

Þegar þetta er skrifað hafa rúmlega 20.800 inneignarkort fyrir 10 boozt-drykki selst á vefsíðunni aha.is. Tilboðið fór af stað í byrjun árs. Hvert kort kostar 4.990 krónur sem þýðir að þau hafi selst fyrir meira en 103 milljónir króna.

Með því að kaupa kortið fær fólk drykkinn á Booztbarnum á 499 krónur í stað þess að borga 1.195 krónur. Afslátturinn er því 58 prósent. Á vef aha.is kemur fram að tilboðið hjálpi fólki að komast aftur í form eftir hátíðarnar.

„Booztið er framleitt úr besta fáanlega hraéfni: skyr.is, ávöxtum og nýpressuðum safa úr ferskum ávöxtum og grænmeti,“ segir á vefnum um drykkina.

Fitulaus hollusta eins og hún gerist best, full af orku og næringu. Þú ræður hvort þú notar allt inneignarkortið í einu eða færð þér stakan drykk í hvert skipti, allt eins og þér hentar.

Kortin gilda til 30. apríl á þremur þjónustustöðvum N1: Í Borgartúni, Ártúnshöfða og Hringbraut.

Áhuginn á inneignarkortunum minnir á æðið þegar ostborgari á Metró var boðinn á 99 krónur á vefsíðunni Hópkaup í mars 2012. Þá seldust 51.839 hamborgarar á 72 prósent afslætti.

Auglýsing

læk

Instagram