John Travolta á Íslandi

Bandaríski leikarinn John Travolta er staddur hér á landi og sást á 101 hóteli í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi. Þetta kemur fram á Vísi.

Á Vísi er haft eftir sjónarvotti að Travolta hafi verið „mjög rólegur“ úti að borða með fjölskyldunni á 101 hóteli þar sem hann gisti í nótt. Hann ku vera að millilenda hér á landi á leiðinni til Bandaríkjanna frá Frakklandi, þar sem kvikmyndahátíðin í Cannes fer fram.

Hildur Björnsdóttir, sem skipar annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, hitti John Travolta á 101 hóteli í gær. Sjálfstæðisflokkurinn birtir myndband af Hildi og John þar sem hann hvetur fólk til að setja X við D.

Auglýsing

læk

Instagram