Justin Bieber lokar Instagram-aðgangi sínum eftir rifrildi við Selenu Gomez

Kanadíska poppstjarnan Justin Bieber stóð við stóru orðin og hefur lokað Instagram-aðgangi sínum. Bieber hótaði aðdáendum sínum að loka aðgangnum um helgina eftir þeir hraunuðu yfir Sofiu Richie, nýju kærustuna hans, á Instagram.

Sjá einnig: Justin Bieber ekki sáttur við aðdáendur sína sem hrauna yfir nýju kærustuna

Bieber birti skilaboð með mynd af sér og Richie á Instagram þar sem hann segir hatrið vera komið úr böndunum.

Ef þið væruð í alvöru aðdáendur mínir mynduð þið ekki koma svona illa fram við fólk mér líkar við.

Kvennamál Biebersins eru alltaf milli tannanna á fólki og aðdáendur hans eru þekktir fyrir að taka því einstaklega illa þegar fjölmiðlar fjalla um að hann sé að slá sér upp.

Á meðal þeirra sem blönduðu sér í umræðuna um hótun Bieber var Selena Gomez, fyrrverandi kærasta hans. Í kjölfarið hófst rifrildi á Instagram þar sem Bieber sakaði Gomez um að hafa nýtt sér frægð hans til eigin frama. Gomez sakaði Bieber aftur á móti um að halda framhjá sér þegar þau voru saman.

Hér má sjá skjáskot af rifrildinu

https://twitter.com/SellaineBieber/status/765103679347101696

Og nú finnst Instagram-aðgangur Justins Bieber hvergi.

Auglýsing

læk

Instagram