Kanye West tjáir sig um viðtalið hjá Kimmel: „Þið eruð Jedi-riddarar”

Kanye West hefur tjáð sig á Twitter um viðtalið sem hann fór í hjá Jimmy Kimmel í síðustu viku. Kanye West talaði meðal annars um samband sitt við Trump í 20 mínútna viðtali sem hefur vakið athygli. Hann gat ekki svarað því þegar Kimmel spurði hann hvers vegna hann héldi að Trump væri ekki sama um svart fólk.

Sjá einnig: Kanye West orðlaus þegar Kimmel spurði hann út í Trump

„Hvort sem okkur líkar við hann sem persónu eða ekki, þá eru það gjörðir hans sem skipta máli. Þú sagðir eftirminnilega að George Bush væri sama um svart fólk. Það fær mig til að hugsa, hvað fær þig til að halda að Trump sé sama?” spurði Kimmel. Kanye spáði mikið í spurningunni en náði ekki að svara áður en þátturinn fór í auglýsingahlé.

Kanye hefur nú tjáð sig um atvikið á Twitter síðu sinni en hann segist einfaldlega ekki hafa fengið nægan tíma til að svara spurningunni. Hann sé þó ánægður með umræðuna hjá Kimmel og hann hafi skemmt sér vel í þættinum. Donald Trump þakkaði Kanye fyrir stuðninginn eftir þáttinn.

Kanye var þó ekki fúll út í þáttastjórnendur og þakkaði þeim fyrir. Hann var sérstaklega ánægður með að Kimmel hefði mætt í Yeezy skóm. „Þið eruð Jedi-riddarar,” skrifaði Kanye um Kimmel og hans lið.

Hér má sjá Kimmel og West ræða Trump

Auglýsing

læk

Instagram