Karlmaður sem barði mann með hjóli úrskurðaður í mánaðar gæsluvarðhald

Karlmaður á þrítugsaldri var í dag úrskurðaður í mánaðar gæsluvarðhald eftir að hafa ráðist á karlmann á fertugsaldri í gær. Hann barði manninn með hjóli og rændi hann á göngustíg milli Engjateigs og Sigtúns í gær. Rúv greindi fyrst frá mál­inu.

Guðmundur Páll Jónsson lögreglufulltrúi segir á Rúv að árásin hafi verið alveg upp úr þurru. Fórnarlambið hafi verið á göngu með hund sinn um miðjan dag í gær þegar skyndilega hafi verið ráðist á hann. Árásarmaðurinn hafi svo skilið hann eftir í blóði sínu eftir að hafa barið hann ítrekað, meðal annars með hjóli sínu.

Fórnarlambið náði að gera vegfaranda viðvart og í kjölfarið var haft samband við lögreglu og sjúkrabíl. Árásarmaðurinn var handtekinn um klukkutíma síðar.

Guðmundur segir að lögregla kannist við árásarmannin og að hann hafi verið undir áhrifum þegar að hann var handtekinn.

 

Auglýsing

læk

Instagram