Katrín Jakobsdóttir telur ekki skynsamlegt að Íslendingar haldi hvalveiðum áfram

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir í viðtali við Stöð 2 að fast verði tekið á málunum ef kemur í ljós að hvalur sem var skotinn um helgina við strendur Íslands sé friðuð tegund. Sérfræðingar telja að hvalurinn sé annað hvort steypireyður eða blendingur steypireyðar og langreyðar.

Steypireyður er alfriðuð tegund og með öllu óheimilt að skjóta hana, blendinga má hins vegar skjóta. Katrín segir að Ísland taki alþjóðlegum skuldbindignum alvarlega í samtali við Stöð 2.

„Það verður að sjálfsögðu gripið til viðeigandi aðgerða ef um friðaðan hval var að ræða. Við því eru auðvitað ákveðin viðurlög,” segir Katrín.

Hún segir að nú sé verið að bíða eftir niðurstöðu erfðarannsóknar og í kjölfarið verði tekin afstaða.

„Það liggur fyrir að það er auðvitað stranglega bannað að veiða friðuð dýr. Við tökum okkar skuldbindingum alvarlega.”

Úttekt á efnahagslegum, umhverfislegum og samfélagslegum þáttum hvalveiða hefur verið sett af stað af hálfu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Katrín segir að engin ný ákvörðun verði tekin fyrr en faglegur grundvöllur sé kominn fyrir því hvort ástæða sé til þess að halda hvalveiðum áfram. Hennar skoðun sé þó skýr.

„Mín skoðun liggur alveg fyrir. Ég hef ekki talið skynsamlegt að halda þessum veiðum áfram,“ segir Katrín í samtali við Stöð 2.

Auglýsing

læk

Instagram