KFC biðst afsökunar á dónalegu tísti til að auglýsa kjúkling: „Ætluðum ekki að móðga neinn“

Skyndibitastaðurinn KFC í Ástralíu hefur beðist afsökunar á tísti sem var birt til að auglýsa svokallaðan „hot and spicy“-kjúkling. Tístið má sjá hér fyrir neðan  en það fékk að vera á Twitter í nokkra klukkutíma áður en því var eytt.

Tístið sýnir mynd af pari en búið er að ritskoða klofsvæði mannsins. Í yfirlýsingu frá KFC kemur fram að ætlunin hafi ekki verið að móðga beinn.

Skyndibitarisinn sagði í yfirlýsingunni að auglýsingin hafi verið einlæg leið til að kynna nýja „Hot & Spicy“ kjúklinginn sem er væntanlegur í næstu viku. „Við höfum fjarlægt myndina og ætluðum ekki að móðga neinn.“

KFC baðst einnig afsökunar með þessu tísti þar sem kemur fram að um dómgreindarbrest hafi verið að ræða.

Auglýsing

læk

Instagram