Khloe Kardashian og Tristan Thompson eignast stúlku í skugga framhjáhalds

Khloe Kardashian hefur eignast stúlku ásamt Tristan Thompson, kærasta sínum. Þetta kemur fram á vef Buzzfeed News. Fæðing stúlkunnar fellur í skuggann á raðframhjáhaldi Tristan, sem kom í ljós í vikunni.

Örskýring: Tristan Thompson hótað lífláti eftir hann hélt framhjá óléttri Khloe Kardashian

Tristan Thompson er leikmaður Cleveland Cavaliers í NBA-deildinni. Hann er sagður hafa haldið oft og mörgum sinnum framhjá Khloe.

Framhjáhaldið varð opinbert í vikunni þegar vefmiðillinn TMZ birti myndband úr öryggismyndavél frá því í október sem sýndi Tristan gera sér dælt við tvær konur á skemmtistað í Washington. Khloe var þá komin þrjá mánuði á leið. Myndbandið sýnir hann kela við konurnar og önnur grípur meðal annars í klof hans.

Fleiri myndbönd birtust í kjölfarið sem sýndu Tristan með öðrum konum. Ein þeirra birti myndband á Instagram sem virtist sýna hann kela við hana en hún tók það niður eftir skamma stund.

Aðdáendur Khloe hafa ekki sparað stóru orðin um Tristan á samfélagsmiðlum. Hann hefur fengið líflátshótanir ásamt því að vera kallaður hataðasti maður Bandaríkjanna um þessar mundir. Þá var púað á hann í leik Cleveland og New York í gærkvöldi.

Auglýsing

læk

Instagram