today-is-a-good-day

Bíóhlaðvarpið Poppkast gerir upp kvikmyndaárið

Poppkast: Bíóhlaðvarp er glænýtt poppkúltúrs-cast en þar ræða þau Nanna Guðlaugardóttir kvikmyndafræðingur og Tómas Valgeirsson bíórýnir ræða alls kyns kvikmyndatengd málefni út og inn. Fjallað er um allt á milli söngleikja, költ-mynda, svipmynda, sjónvarps, hryllings og sjónvarpshryllings, svo dæmi séu nefnd.

Í lýsingu þáttarins  segir að tilgangur hvers innslags og með vali á umræðu er til að uppgötva og fræðast um sess og dulið þemagildi verks, grandskoða leyndari horn kvikmyndasögunnar og mun þess á milli að aðskilja gæði út frá sögulegum sess, ef á við – og vissulega líka bara finna eitthvað gott popp(verk) til að háma í sig.

Hlaðvarpið hóf göngu sína fyrr í desember og eru nú orðnir fjórir talsins. Á meðal umfjöllunarefnis má nefna ítarlegar greiningar á kvikmyndunum The Matrix Resurrections, Avatar: The Way of Water, Midsommar og sjónvarpsþættina Black Mirror.

Í efsta neðangreindu innslagi tvíeykisins er áramótaþema og þá rýnt í heitustu og helstu bíótitla ársins ásamt fleirum. Þar í brennidepli má nefna kvikmyndirnar Everything, Everywhere All at Once, The Batman, Nope, Top Gun: Maverick, Elvis, Blonde, svo dæmi séu nefnd.

Þættina má nálgast hér gegnum Spotify hlekki en almennt eru þeir aðgengilegir á helstu hlaðvarpsveitum (t.a.m. Apple, Google, Stitcher o.fl.)

 

 

Auglýsing

læk

Instagram