Kylie Jenner ekki með á jólakorti Kardashian-fjölskyldunnar

Kylie Jenner er ekki með á jólakorti Kardashian-fjölskyldunnar í ár. Sjáðu kortið hér fyrir neðan. Fjölmiðlar vestanhafs hafa gert mikið úr málinu en fjarvera Kylie þykir gefa sögusögnum um að hún sé ólétt byr undir báða vængi.

Kim Kardashian birti mynd jólakorti fjölskyldunnar á Twitter

Fjölmiðlar greindu frá því í september að athafnakonan Kylie, yngsta Kardashian-systirinn, ætti von á barni ásamt rapparanum Travis Scott. Hún hefur þó aldrei staðfest fréttirnar en ýmislegt þykir benda til þess að fréttirnar séu á rökum reistar.

Kim Kardashian ræddi um jólakortið í spjallþættinum Late Late Show á dögunum og sagði að það væri afar hversdagslegt í ár. „Við erum bara í bolum og gallabuxum. Mjög sætt.

Það var frekar erfitt að ná krökkunum saman á mynd. Í ár eru þetta bara konur og börn.

Kim hefur birt myndir úr myndatökunni á Twitter undanfarið. Sjáðu myndirnar hér fyrir neðan

Engin Kylie

Kanye hins vegar

Auglýsing

læk

Instagram