Leikur Íslands og Englands í 16 liða úrslitum EM í fótbolta í Frakklandi á mánudaginn verður sýndur í beinni útsendingu við Arnarhól.
EM-torgið hefur verið á Ingólfstorgi frá því að mótið hófst en vegna mikils áhuga þjóðarinnar á að horfa saman á þennan stórleik Íslands í 16-liða úrslitum Evrópukeppninnar var ákveðið, í samráði við Reykjavíkurborg, að setja upp risaskjá og hljóðkerfi við Arnarhól.
Þetta kemur fram í tilkynningu. Aðeins þessi leikur Íslands verður sýndur við Arnarhól og verða aðrir leikir sem eftir eru í keppninni áfram sýndir á Ingólfstorgi.
Sviðið verður neðst í brekkunni við Lækjargötu og ættu því áhorfendur á Arnarhóli að sjá vel á skjáinn. Í tilkynningu kemur fram að búist sé við góðri mætingu enda tókst ekki öllum aðdáendum landsliðsins að tryggja sér miða á leikinn í Nice.
Veðurspáin er hagstæð, fjöldi breskra ferðamanna er á landinu og áhugi Íslendinga á EM torginu hefur þegar farið fram úr björtustu vonum.
Reykjavíkurborg í samstarfi við aðstandendur EM-torgsins; Íslenska Getspá, Landsbankann, Icelandair, Coca-Cola, KSÍ, N1, Símann og Borgun vinna að þessari breytingu.
Lækjargata verður lokuð frá morgni til kvölds næstkomandi mánudag en það verður auglýst nánar síðar.