Lof mér að falla valin á Kvikmyndahátíðina í Toronto

Lof Mér að falla, nýjasta kvikmynd leikstjórans Baldvin Z, hefur verið valin á Kvikmyndahátíðina í Toronto í Kanada sem fer fram sjötta til sextánda september.

Myndin segir frá hinni fimmtán ára gömlu Magneu en líf hennar umturnast þegar hún kynnist hinni átján ára gömlu Stellu. Magnea laðast að hispurslausu lífi Stelli og þróar með sér sterkar tilfinningar til hennar sem Stella notfærir sér til eigin hagsbóta. Stella leiðir Magneu inn í heim fíkniefna sem hefur alvarlegar afleiðingar fyrir þær báðar. Tólf árum síðar liggja leiðir þeirra svo óvænt saman á ný.

Sjá einnig: Sjáðu rosalega stiklu fyrir nýjustu kvikmynd Baldvin Z

Með aðalhlutverk í Lof mér að falla eru leikkonurnar Elín Sif Halldórsdóttir og Eyrún Björk Jakobsdóttir en leikarinn Þorsteinn Bachman fer einnig með stórt hlutverk. Í myndinni fara einnig með hlutverk Sturla Atlason, Edda Björgvinsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson og Halldór Halldórsson.

Myndin verður frumsýnd hér á landi 7. september næstkomandi.

Auglýsing

læk

Instagram