Miley Cyrus slær á orðróm um óléttu: „Át bara ógeðslega mikið af tófú-kalkún“

Bandaríska söngkonan Miley Cyrus birti mynd af sér á Instagram eftir að hafa lokið við að borða tófú-kalkún á þakkargjörðarhátíðinni í gær. Margir túlkuðu myndina sem sjá má hér að neðan sem tilkynningu um að hún væri ófrísk. Hún var fljót að bregðast við því með frábæru tísti.

https://www.instagram.com/p/Bb0r81hhFDK/?taken-by=mileycyrus

Við myndina setti Miley myllumerkið #VeganTurkeyBaby túlkuðu margir aðdáendur og fjölmiðlar það sem tilkynningu um að hún og kærasti hennar, Liam Hemsworth, ættu von á barni. Söngkonan geðþekka var ekki ánægð með það og blés á þær grunsemdir á Twitter. „Ekki ólétt, át bara ógeðslega mikið af tófú-kalkún,“ skrifaði Miley með tístinu.

Auglýsing

læk

Instagram