Minnihlutinn segir neyðarástand ríkja í Reykjavík: „Heim­il­is­laust fólk fær ekki sum­ar­frí frá áhyggj­um sín­um”

Minnihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur fundaði í gær og sendi í kjölfarið frá sér yfirlýsingu um það neyðarástand sem ríkir meðal sífellt fleiri heimilislausra í Reykjavík. Minnihlutinn harmar algjört aðgerðarleysi í þessum málaflokki.

Í yfirlýsingunni segir enn frekar að það sé fullkomið ábyrgðarleysi að borgarstjórn og fagráð borgarinnar séu komin í sumarleyfi án þess að leysa vandann.

Minnihlutinn sem kallar sig stjórnarandstöðuna í yfirlýsingunni segist hafa óskað eftir aukafundi í velferðarráði fyrr í sumar þar sem þessi mál yrðu sett á dagskrá í heild sinni.

„ Svör­in voru á þann veg að ekki var unnt að verða við ósk um auka­fund fyrr en 10. ág­úst nk., á meðan eykst neyð heim­il­is­lausra með hverj­um deg­in­um. Eins og fram hef­ur komið í ný­legu áliti umboðsmanns Alþing­is hef­ur meiri­hluti borg­ar­stjórn­ar brugðist skyld­um sín­um í þess­um efn­um,” segir í yfirlýsingunni.

Minnihlutinn sammælist um að grípa þurfi til neyðarúrræða og hefjast handa við að leysa vandann til frambúðar. Hann hefur farið fram á aukafund í borgarráði strax í næstu viku.

„Heim­il­is­laust fólk fær ekki sum­ar­frí frá áhyggj­um sín­um og þeirri ang­ist sem fylg­ir því að hafa ekki þak yfir höfuðið.”

Auglýsing

læk

Instagram