NBA-leikmaðurinn Derrick Rose kærður fyrir nauðgun

Fyrrverandi kærasta körfuboltamannsins Derrick Rose, leikmanns Chicago Bulls í NBA í deildinni, hefur kært hann fyrir nauðgun. Rose er sakaður um að hafa byrlað henni ólyfjan og nauðgað henni ásamt tveimur félögum sínum. Lögmaður Rose segir kæruna svívirðilega.

Rose átti í ástarsambandi við konuna á árunum 2011 til 2013. Nauðgunin á að hafa átt sér stað í ágúst árið 2013 þegar konan heimsótti Rose í hús hans í Beverly Hills.

Hann var þar ásamt tveimur vinum sínum. Hún segir þá hafa laumað lyfjum í glas hennar. Henni tókst að komast á brott ásamt vini sínum en segir þá félaga hafa brotist inn í íbúðina sína seinna um kvöldið og hópnauðgað henni.

Lögmaður Rose segir að kæran sé „svívirðileg“ og sakar konuna um að vera á eftir peningum. Þá telur hún að málið verði fellt niður og Rose hreinsaður af þessum ásökunum.

Derrick Rose er einn besti leikmaður NBA-deildarinnar. Hann var nýliði ársins í NBA-deildinni tímabilið 2008 til 2009 og verðmætasti leikmaður deildarinnar 2010 til 2011.

 

Auglýsing

læk

Instagram