Netflix veltir því fyrir sér hvað krakkarnir í Friends væru að gera árið 2018

Efnisveitan Netflix birti í gær tíst þar sem fyrirtækið veltir því fyrir sér hvað þau Rachel, Ross, Monica, Chandler, Joey og Pheobe væru að bralla ef þættirnir vinsælu um vinina í New York væru enn í gangi. Færslan hefur slegið í gegn og farið sem eldur í sinu um netheima.

Joey að éta þvottaefni, Ross að blaðra um Bitcoin og Ed Sheeran að trufla Phoebe er meðal þess sem Netflix áætlar að hópurinn væri að gera ef þættirnir væru enn í gangi.

Sjá einnig: Stikla fyrir Friends kvikmynd sem er ekki til ruglar aðdáendur þáttanna í ríminu

Þrátt fyrir að nú séu liðin 14 ár síðan þættirnir vinsælu hættu, þá lifa þeir ennþá nokkuð góðu lífi. Þættirnir eru vinsælir á Netflix og margir eiga sér þann draum að þeir snúi aftur. Hvort þessi spá Netflix svali þorsta aðdáenda skal ósagt látið.

Auglýsing

læk

Instagram