Rosaleg stikla úr annarri þáttaröð af 13 Reasons Why birt: „Hannah var ekki sú eina“

Önnur sería af þáttunum 13 Reasons Why er væntanleg á Netflix síðar í þessum mánuði en gær var birt stikla úr þáttunum sem ætti að koma aðdáendum upp á tærnar. Sjáðu stikluna í spilranum hér að ofan.

Stiklan var einnig birt á Twitter-síðu þáttanna undir yfirskiftinni. „Hannah var ekki sú eina.“

Fyrsta sería af 13 Reasons Why fór í dreifingu á Netflix 31. mars á síðasta ári. Þættirnir slógu í gegn en þeir fjalla um sjálfsvíg Hönnuh Baker, sem skildi eftir sig kasettur þar sem hún segir frá ástæðunum fyrir því að hún ákvað að stytta sér aldur. Í þáttunum er fylgst með lífi Clay Jensen eftir að hann fékk kasetturnar afhentar.

Þættirnir eru einnig umdeildir og hafa verið gagnrýndir meðal annars fyrir að sýna sjálfsvíg í fögru ljósi.

Auglýsing

læk

Instagram