Rúmum 400 milljónum krónum úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur úthlutað rúmum 400 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra til uppbyggingar og endurbóta á hjúkrunarheimilum um land allt. Úthlutunin er í samræmi við tillögu stjórnar sjóðsins.

„Það er kraftur í uppbyggingu þessarar mikilvægu þjónustu við aldraða. Miklar endurbætur hafa átt sér stað á síðustu misserum sem bæta aðbúnað og aðstæður fólks sem ekki er fært um að búa lengur heima, samhliða nýframkvæmdum. Þá er ekki síður mikilvæg sú uppbygging sem felst í fjölgun dagdvalarrýma, því í þeim felst þjónusta sem tvímælalaust lengir möguleika aldraðra til að búa heima þótt þeir þurfi mikinn stuðning. Og það er jú það sem flestir vilja allra helst,“ segir heilbrigðisráðherra í fréttatilkynningu.

Af einstökum framlögum rennur stærsta fjárhæðin til viðbyggingar eldhúss Hrafnistu og endurnýjun búnaðar þar, en þar verður framleiddur matur fyrir íbúa allra Hrafnistuheimilanna. Sömuleiðis renna framlög til endurnýjunar búnaðar í eldhúsum Eirar og hjá Öldrunarheimilum Akureyrar. Samanlagt eru þetta tæpar 200 milljónir króna.

Tæpar 70 milljónir króna fara í framkvæmdir sem snúa að því að færa aðbúnað íbúa á hjúkrunarheimilum í nútímalegt horf með breytingu á fjölbýlum í einbýli með snyrtingu. Enn fremur er tæpum 50 milljónum króna varið í fjölgun dagdvalarrýma og bætta aðstöðu á Sólvangi í Hafnarfirði og vegna breytinga á hjúkrunardeild í dagdeild fyrir heilabilaða á Hrafnistu. Að öðru leyti er um lægri fjárhæðir að ræða sem renna til smærri viðhaldsverkefna og endurbóta.

Auglýsing

læk

Instagram