today-is-a-good-day

Rússneska samfélagsmiðlastjarnan sem keyrði utanvegar svarar fyrir sig: „Mér finnst þið vera dýr“

Ferðalag Alexander Tikhomirov til Íslands hefur heldur betur vakið athygli en Tikhomirov þurfti að greiða háa sekt fyrir utanvegaakstur við Mývatn. Hann er þekktur á samfélagsmiðlum ytra og sýndi frá akstrinum á Instagram síðu sinni. Íslendingar hafa margir hverjir látið hann heyra það í kjölfarið.

Tikhomirov svaraði fyrir sig á Instagram í dag þar sem hann skrifar að það hafi enginn sagt honum að utanvegaakstur væri ólöglegur og að hann hafi séð dekkjaför þar sem hann var tekinn áður en hann keyrði þangað.

„Af­sakið ensk­una mína, ég ætla að reyna að út­skýra hvað gerðist á Íslandi,“ skrif­ar Al­ex­and­er Tik­hom­irov, sem olli tals­verðu tjóni með ut­an­vega­akstrinum.

„Ég beygði af veg­in­um til að kom­ast nær þok­unni, til að taka mynd með bíln­um. Ég vissi ekki að svæðið nærri þok­unni væri mjög mjúkt. Ég fest­ist,“ skrif­ar Tik­hom­irov og seg­ist hafa lent í mikl­um vand­ræðum við lög­reglu, bíla­leigu og land­eig­end­ur. „Ég er þegar bú­inn að borga 5.000 doll­ara (og þeir vilja enn meira).“

„Síðan áttuðu einhverjir heimamenn sig á því hver við værum og hentu plastflöskum í bílinn okkar á meðan við vorum að keyra. Væntanlega telja þeir að plastið sé betra fyrir náttúruna,“ skrifar Tikhomirov og bætir við að fólkið sem hefur óskað honum dauða séu meiri dýr en þau segja hann vera.

Auglýsing

læk

Instagram