Auglýsing

Sagan af uppruna Eðlunnar loksins afhjúpuð

Eðla er ostadýfa sem samastendur af rjómaosti, salsasósu og osti. Hún er svo bökuð í ofni og borðuð með kornflögum. Nútíminn hefur rannsakað uppruna þess að rétturinn er kallaður Eðla og birti frétt á dögunum um að vinur grínistanna Steinda jr. og Dóra DNA frá Mosfellsbæ sé upphafsmaðurinn.

Bæjarblaðið Mosfellingur hefur kafað enn dýpra í málið og afhjúpar í dag söguna á bakvið Eðluna.

Sjá einnig: Eðlan eykur sölu á rjómaosti

Steindi jr. hefur haldið Eðlunafninu á lofti á samfélagsmiðlum og sendi reglulega Snapchat af sér að borða sjóðandi heita Eðlu. Þá hefur hann birt myndir af Eðlum á Instagram ásamt því að ræða um Eðlur við notendur á Twitter. Talið var að Steindi og félagar hafi byrjað að nota orðið fyrir um áratug síðan en í Mosfellingi kemur fram að ostadýfan heita hafi fengið nafnið Eðla árið 2001.

Vinkonurnar Vigdís Guðmundsdóttir, Eva Ósk Svendsen, Anna María Örnólfsdóttir og Telma Baldursdóttir hafa lengi verið saman í saumaklúbbi. Í viðtali við Mosfelling segja þær að ostadýfan hafi verið tíður réttur þegar þær hittast.

„Við höfðum oft að talað um það að okkur vantaði nafn á saumaklúbbinn, svo eitt kvöldið 2002 þegar við hittumst kom það. Þann dag hafði Telma farið örlagaríka ferð í Europris og keypt sér hillu,“ segir Eva Ósk í Mosfellingi og Telma tekur við:

Ég hafði sem sagt keypt mér hillu í Europris, fór heim og ætlaði að fara að setja hana saman. Þegar ég opnaði pakkninguna þá var dauð eðla í hillunni. Um kvöldið tók ég eðluna með í lokuðu boxi til að sýna stelpunum, og þar sem við höfðum verið að vandræðast með nafn á klúbbinn fannst okkur tilvalið að kalla okkur Eðlurnar.

Svo vildi til að Anna María var með ostadýfu í ofninum þetta örlagaríka kvöld og síðan þá hefur rétturinn aldrei verið kallaður annað en Eðlurétturinn eða Eðlan.

„Við höfum oft boðið upp á Eðlu í afmælum og veislum. Fólk í kringum okkur fór þá líka að kalla réttinn Eðlu og nafnið greinilega fest við og hann gengur nú undir þessu nafni um allt land,“ segir Telma.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing