Salvador Sobral útskrifaður af spítala eftir hjartaígræðsluna

Salvador Sobral, sem sigraði eftirminnilega í Eurovision í fyrra, hefur verið útskrifaður af spítala eftir hjartaígræðslu sem hann gekkst undir á síðasta ári.

Salvador söng sig inn í hjörtu Evrópu með laginu Amar Pelos Dois í Úkraínu í fyrra. Systir hans, Luísa Sobral, samdi lag og texta og var þetta í fyrsta skipti sem Portúgal vinnur Eurovision.

Sjá einnig: Portúgal sigraði Eurovision

Salvador er á góðum batavegi eftir aðgerðina og þakkar aðdáendum sínum kærega fyrir stuðninginn í færslu á Facebook-síðu sinni. Hann beinir einnig til þeirra ósk um að fólk rjúki ekki á hann og faðmi hann að sér á meðan hann er að jafna sig. „Bráðum verðum við með fréttir af endurkomu hans á sviðið!“ kemur einnig fram í færslunni.

Auglýsing

læk

Instagram