Samtal Kim Kardashian og Alec Baldwin um Caitlyn Jenner vekur reiði meðal áhorfenda

Kim Kardashian West var gestur í nýjum spjallþætti Alec Baldwin í vikunni þar sem þau ræddu meðal annars Caitlyn Jenner. Samtal þeirra um Caitlyn hefur vakið töluverða reiði í trans samfélaginu í Bandaríkjunum en þau tala bæði um Caitlyn sem „hann“ og kalla hana Bruce, sem er nafnið sem hún bar fyrir kynleiðréttingu.

Á meðan viðtalinu stóð notuðu Kim og Alec vitlaust fornafn í yfir 20 skipti. Sem dæmi sagði Alec að það hefði ekki verið ögn af Caitlyn í „honum“ þegar hann þekkti „hann“. Kim var sammála.

Áhorfendur hafa bent á að þegar talað er um transfólk eigi alltaf að nota núverandi nafn og fornafn. Gamla nafnið sé dautt.

https://twitter.com/georgeinthepark/status/1053835804525674496

https://twitter.com/marxistboi666/status/1053098978152235009

Auglýsing

læk

Instagram