Saumuðu 75 glæsileg jakkaföt fyrir KSÍ, sjáðu strákana okkar í mátun

Mynd sem evrópska knattspyrnusambandið birti á Twitter af strákunum okkar mæta til leiks í Frakklandi í einstaklega glæsilegum jakkafötum vakti mikla athygli í vikunni.

„Looking good, Iceland!“ stóð í tístinu og frétt Nútímans um myndina var dreift af þúsundum á Facebook.

Sigríður Þóra í EM svítunni á sportstöð Símans fylgdi klæðskerum frá Herragarðinum til Danmerkur þar sem strákarnir voru mældir fyrir jakkafötin. Horfðu á innslagið í spilaranum hér fyrir ofan.

Opna í nýjum flipa: Strákarnir okkar litu fáránlega vel út þegar þeir lentu í Frakklandi, svona á að mæta til leiks!

Í innslaginu kemur fram að alls hafi verið saumuð 75 jakkaföt fyrir KSÍ. „Allt liðið, alla sem eru í kringum liðið og stjórnina og alles,“ sagði klæðskerinn.

En leikmennirnir fá soldið flottari föt því þeir fá númerin sín inn í og svona.

Horfðu á strákana í mátun í spilaranum hér fyrir ofan.

Auglýsing

læk

Instagram