Segir fyrirtæki setja óþarfar kröfur um menntun, telur að reynsla sé vanmetin

Mörg íslensk fyrirtæki setja menntunarkröfur fyrir störf þar sem það er óþarfi. Þetta kom fram í máli Svala h. Björgvinssonar, framkvæmdastjóra starfsmannasviðs Icelandair, í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun.

Í þættinum sagði Svali að reynsla sé vanmetin en stórfyrirtæki á borð við PricewaterhouseCoopers, Penguin og Ernst&Young hafa fellt niður skilyrði um háskólagráðu við ráðningar.

Háskólagráður hafa gengisfallið að því marki að núna er krafa um masterspróf alls staðar á meðan það var BA, BS og stúdentspróf.

Svali sagði í Morgunútvarpinu að fyrirtæki, þar á meðal Icelandair, vilji fjölbreytni. Hann benti á að erlendis meira um próf heldur en hérna. „Fólk fer bara í greindarpróf ef því er að skipta,“ sagði hann. Fyrirtæki, þar á meðal Icelandair, vilji núna fjölbreytni.

„Þú vilt ekki að allir komi nákvæmlega eins inn. Ég held að mörg íslensk fyrirtæki, og maður sér það ef maður les atvinnuauglýsingar, hafa yfirskotið menntun, eru að biðja um menntun í störf þar sem raunverulega þarf ekki jafn mikla menntun og um er beðið,“ sagði Svali í Morgunútvarpinu.


„Við erum að sjá núna bara hjá okkur, og ábyggilega svipað hjá fjölmörgum fyrirtækjum, ef þú auglýsir eftir starfi þar sem þarf ekki háskólapróf, það eru hundruð manna með háskólapróf sem sækja um.

Það er þekkt eins og flugfreyjustarf þar sem þarf ekki háskólapróf að það eru fleiri hundruð, þúsundir manna með háskólapróf sem sækja um slíkt starf. Ég held að reynsla sé vanmetið fyrirbæri klárlega. Það er spurning hins vegar í svona ráðningaferli hvernig þú getur metið þessa þætti.“

Auglýsing

læk

Instagram