Sjáðu rosalega stiklu fyrir nýjustu kvikmynd Baldvin Z

Í dag kom út ný stikla fyrir kvikmyndina Lof mér að falla. Baldvin Z leikstýrir myndinni en hann skrifar einnig handrit myndarinnar ásamt Birgi Erni Steinarssyni. Sjáðu stikluna neðst í fréttinni.

Myndin segir frá hinni fimmtán ára gömlu Magneu en líf hennar umturnast þegar hún kynnist hinni átján ára gömlu Stellu. Magnea laðast að hispurslausu lífi Stelli og þróar með sér sterkar tilfinningar til hennar sem Stella notfærir sér til eigin hagsbóta. Stella leiðir Magneu inn í heim fíkniefna sem hefur alvarlegar afleiðingar fyrir þær báðar. Tólf árum síðar liggja leiðir þeirra svo óvænt saman á ný.

Sjá einnig: Lof mér að falla valin á Kvikmyndahátíðina í Toronto

Baldvin Z og Birgir Ernir störfuðu einnig saman þegar þeir skrifuðu saman handrit myndarinnar Vonarstrætis. Sú mynd sópaði til sín tólf verðlaunum á Edduverðlaunahátíðinni árið 2015 og tæplega 48 þúsund manns sáu myndina í kvikmyndahúsum hér á landi.

Elín Sif Halldórsdóttir og Eyrún Björk Jakobsdóttir fara með aðalhlutverki í myndinni Lof mér að falla en leikarinn Þorsteinn Bachman fer einnig með stórt hlutverk. Í myndinni leika einnig Sturla Atlason, Edda Björgvinsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson og Halldór Halldórsson.

Lof mér að falla verður frumsýnd hér á landi 7. september næstkomandi.

Sjáðu nýju stikluna

Auglýsing

læk

Instagram