Sjö einstaklingar sem þú ættir að fylgjast með á Snapchat

Tryggvi Freyr Torfason, 29 ára gamall Hvergerðingur, lagði internetið á hliðina í gær þegar Nútíminn fjallaði um stórkostlegar eftirhermur hans. Tryggvi hefur slegið í gegn á Snapchat en þó Instagram geri allt til að bola Snapchat út af markaðnum eru enn þá þúsundir Íslendinga sem horfa á snöpp á hverjum einasta degi.

Nútíminn tók saman lista yfir einstaklinga sem eru kannski ekki eins vinsælir og Sólrún Diego eða Snorri Björns en þú ættir að byrja að fylgjast með.

Daníel Már – djaniel88

Daníel Már er vélbyssukjaftur sem flestir ættu að geta hlegið af. Hann á að öllum líkindum íslandsmetið í því að byrja í átaki en það hefur hann gert u.þ.b tvisvar í viku frá því hann hóf að snappa.

Ingólfur Grétarsson – goisportrond

Ingólfur Grétarsson, eða Gói sportrönd er mikill sprelligosi sem ætti ekki að eiga í vandræðum með að skemmta þér. Kærasta Ingólfs, Tinna er einnig þekktur snappari og því er oft líf og fjör hjá þeim .

Viðar Skjóldal – enskiboltinn

Viðar Skjóldal hefur heldur betur verið að hasla sér völl í Snapp heiminum en hann fylgist grannt með því sem gerist í enska boltanum. Viðar er atvinnu snappari og leggur gríðarlegan metnað í að sinna fylgjendum.

Snorri Rafnsson – vargurinn

Snorri Rafnsson eða Nesvargur eins og hann kallar sig er mjög einstakur snappari, hann er ekki að mála sig, djamma eða elda heldur er með byssuna á lofti alla daga að veiða minka og refi. Þeir sem hafa áhuga á veiði eða útivist ættu allir að fylgja þessum á Snapchat.

Heiðdís Rós – hrosmakeup

Heiðdís Rós er kona sem búsett er í Los Angeles og getur hreinlega allt. Förðunarfræðingur, frumkvöðull og djammari sem kann svo sannarlega að lifa lífinu.

Donna Cruz – donneunice

Donna Cruz tók þátt í ungfrú Ísland árið 2016, sló strax í gegn og vakti strax verðskuldaða athygli. Hún gekk í kjölfarið til liðs við Áttuna þar sem hún lét ljós sitt skína. Ef þú ert í leit að góðu gríni mælum við með að þú addir Donnu Cruz.

Tinna Björk – tinnabk

Tinna Björk Kristinsdóttir er snappari sem við mælum með að allir bæti við hjá sér, hress og mjög fyndin stelpa sem mun fá þig til að hlægja a.m.k einu sinni á dag, við lofum því.

Auglýsing

læk

Instagram