Auglýsing

Skotárásin í Álfholti: Tveir dæmdir í gæsluvarðhald

Tveir karlar voru í kvöld í Héraðsdómi Reykjaness úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald, eða til fimmtudagsins 4. janúar, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á skotárás í Hafnarfirði á aðfangadagskvöld.

Nútíminn fjallaði um skotárásina og ræddi meðal annars við íbúa í Álfholti.

Mennirnir voru báðir handteknir síðastliðna nótt, en þriðji maðurinn, sem var handtekinn í gær og greint var frá í fyrri tilkynningu lögreglu, er laus úr haldi, en ekki var krafist gæsluvarðhalds yfir honum.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing