Strákarnir okkar fengu höfðinglegar móttökur við komuna til landsins

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta lenti á Íslandi í gær eftir að þátttöku liðsins á HM í Rússlandi lauk. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hittu landsliðshópinn í höfuðstöðvum KSÍ í gær. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins.

Ríkisstjórnin bauð til óformlegrar móttöku og var landsliðshópnum og fjölskyldum þeirra færðar þakkir og kveðjur. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands var einnig viðstaddur líkt og Eliza Reid, forsetafrú, Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir formaður borgarráðs og staðgengill borgarstjóra.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sagði að strákarnir hefðu veitt þjóðinni mikinn innblástur og mikla gleði síðustu vikurnar.

„Mér þótti vænt um að geta komið þeim skilaboðum til þeirra og fjölskyldna þeirra við heimkomuna í gærkvöldi. Samvinnan og baráttuþrekið þeirra hefur kennt okkur margt og þeir mega vita það að við erum öll sem eitt afar stolt af þeim,” sagði Katrín.

„Það er sjaldgæft að nær allir landsmenn upplifi sömu tilfinningarnar á sama tíma – en það gerist stundum og sér í lagi þegar við fylgjumst með afreksfólkinu okkar á íþróttasviðinu. Strákarnir hafa náð eftirtektarverðum árangri. Kraftur þeirra, samstaða og baráttuhugur eru til fyrirmyndar og landsmenn, og aðrir aðdáendur, fullir þakklætis og stolts í þeirra garð,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Auglýsing

læk

Instagram