today-is-a-good-day

Te & Kaffi hættir í verslunum Eymundsson

Kaffihúsið Te & Kaffi á Akureyri kemur til með að loka um mánaðarmótin. Þetta staðfestir Halldór Guðmundsson, framkvæmdarstjóri Te & Kaffi, í samtali við norðlenska vefmiðilinn Kaffid.is. Hann segir það miður að verið sé að loka kaffihúsm keðjunnar í Eymundsson verslunum landsins.

Kaffihúsakeðjan rekur samtals þrettán kaffihús, þar af tólf í Reykjavík og eitt á Akureyri. Te & Kaffi og Eymundsson hafa verið í samstarfi í rúmlega áratug en kaffihúsið á Akureyri hefur verið starfrækt frá árinu 2007. Áframhaldandi samningar náðust ekki á milli fyrirtækjanna og því lokar kaffihúsið á Akureyri ásamt þeim kaffihúsum fyrir sunnan sem eru í Eymundsson verslunum.

Auglýsing

læk

Instagram