Þjóðminjasafnið hafnaði síðasta McDonalds-borgaranum

Þjóðminjasafn Íslands hafnaði beiðni um að varðveita síðasta McDonalds hamborgarann á Íslandi og lagði til að honum yrði hent. Þetta kemur fram á mbl.is.

Hjörtur Smárason keypti borgarann 31. október 2009 áður en staðnum var lokað en fyrsti McDonalds-staðurinn opnaði í Reykjavík árið 1993. Hamborgarinn er nú til sýnis á barborði Bus Hostel og er í góðu standi, samkvæmt frétt mbl.is.

Hjört­ur seg­ir í samtali við mbl.is Þjóðminja­safn­inu enn standa til boða að fá borg­ar­ann í safnið og tel­ur að hann myndi sóma sér vel um­kringd­ur kuml­um og forn­um klæðum.

Aðal­heiður Ýr Gests­dótt­ir, rekstr­ar­stjóri Bus Hostel, seg­ir á mbl.is að hamborgarinn veki mikla lukku meðal gesta hostels­ins:

„Fólk ætl­ar yf­ir­leitt ekki að trúa því að hann sé í þetta flottu ástandi, að hann sé þetta gam­all. Ein­hverj­ir óprúttn­ir gest­ir hafa meira að segja stolið sér frönsk­um, það voru mun fleiri fransk­ar upp­runa­lega,“ segir hún.

Auglýsing

læk

Instagram