Þorgerður segir ekki vandræðalegt að skipta um skoðun í flugvallarmálinu: „Eigum að horfa til framtíðar“

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðherra, hefur skipt um skoðun í flugvallarmálinu. Árið 2011 vildi hún að Reykjavíkurflugvöllur yrði framtíðarmiðstöð innanlandsflugs en eft­ir að hafa kynnt sér málið betur segist hún sannfærð um að framtíðarstaðsetning fyrir innanlandsflug sé ekki í Vatnsmýrinni.

Þorgerður átti sæti í Rögnu-nefndinni sem er starfshópur um flugvallarkosti í höfuðborginni. Árið 2015 komst nefndin að þeirri niðurstöðu að hagkvæmast væri að byggja flugvöll í Hvassahrauni. Nefndin telur að allir staðirnir sem nefndir eru í skýrslunni geti rúmað starfsemina sem er nú í Vatnsmýri.

Þorgerður var meðflutningsmaður Jóns Gunnarssonar að þingsályktunartillögu árið 2011 um að Reykjavíkurflugvöllur yrði framtíðarmiðstöð innanlandsflugs. Hún er á annarri skoðun í dag eins og kom skýrt fram á Twitter á dögunum:

Í samtali við Morgunblaðið í dag segir Þorgerður ekki vandræðalegt að skipta um skoðun í málinu. „Nei, það er alls ekkert vandræðalegt fyrir mig,“ segir hún,“ segir hún í Morgunblaðinu.

Í millitíðinni hef ég verið í Rögnu-nefndinni og ég er búin að kynna mér málið ofan í kjölinn og hef í kjölfar þess skipt um skoðun

Þorgerður er sann­færð um að framtíðarstaðsetn­ing fyr­ir inn­an­lands­flug sé ekki í Vatnsmýrinni. „Þannig að það er hvorki óþægilegt né vandræðalegt fyrir mig að hafa skipt um skoðun í þessum efnum,“ segir hún í Morgunblaðinu.

„Mín skoðun í þessu máli er mjög skýr. Við eigum að horfa til framtíðar. Unga fólkið er ekki að fara að sjá framtíð flugvallarins í Vatnsmýrinni og ég held að það sé kominn tími til þess að við sem eldri erum hlustum á sjónarmið unga fólksins.“

Auglýsing

læk

Instagram