Tölvuleikurinn EVE Online tilnefndur til BAFTA verðlauna

Tölvuleikurinn EVE Online, frá íslenska fyrirtækinu CCP, hefur verið tilnefndur til BAFTA verðlauna í flokknum Evolving Games ásamt leikjunum Destiny: Rise of Iron, Elite Dangerous: Horizons, Final Fantasy XIV: Online, Hitman og Rocket League. Tilnefningarnar voru birtar á vef BAFTA í dag.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem leikurinn er tilnefndur til BAFTA verðlauna en hann var einnig tilnefndur til verðlaunanna árið 2015. Leikurinn kom fyrst út árið 2003 og fagnar því 14 ára afmælinu sínu í ár.

Pokémon GO var einnig tilnefndur til BAFTA verðlauna í flokki nýsköpunar.

BAFTA tilkynnti þetta maðal annars á Twitter

Hjá EVE Online var fólk eðlilega ánægt með tilnefninguna

Auglýsing

læk

Instagram