today-is-a-good-day

Twitter fór á hliðina eftir magnað viðtal við Lilju Alfreðsdóttur: „Þessar karlrembur eiga ekkert í hana“

Magnað viðtal við Lilju Dögg Alfreðsdóttur, menntamálaráðherra, í Kastljósi í gær hefur vakið mikla athygli. Lilja sagði þá Sigmund Davíð Gunnlaugsson, Gunnar Braga Sveinsson og Bergþór Ólason vera ofbeldismenn sem ekki eiga að hafa dagskrárvald í íslensku samfélagi. Mikil umræða hefur verið um viðtalið á Twitter þar sem Lilju er hrósað fyrir framkomu sína og ummæli.

Sjá einnig: Sjáðu magnað viðtal við Lilju Alfreðsdóttur: „Þeir eru ofbeldismenn“

 „Ég bara trúði þessu ekki. Að menn gætu talað með þessum hætti og ég bara vek athygli á því að þetta er algjört ofbeldi,“ sagði Lilja í þættinum og bætti við: „ Ég upplifi þetta sem algjört ofbeldi. Þeir eru ofbeldismenn og ég segi bara, þetta er alveg skýrt í mínum huga, ofbeldismenn hafa ekki dagskrárvald í íslensku samfélagi.“

Lilja sagði að það væri mjög erfitt fyrir sig að ræða þetta mál en hún kæmi í þetta viðtal fyrir mæður og dætur landsins. „Ég vil bara að það sé alveg á hreinu að þetta er óásættanlegt. Við viljum ekki að íslenskt samfélag sé svona. Þetta er líka fyrir dætur landsins og mæður. Við viljum ekki þurfa að lesa svona um einhvern,“ sagði Lilja.

Hér að neðan má sjá brot úr umræðunni á Twitter

Auglýsing

læk

Instagram