Tyrkir hafa kvartað formlega við íslensk stjórnvöld vegna móttökunnar sem landsliðið fékk

Utanríkisráðuneyti Tyrklands hefur sent formlega kvörtun til íslenskra stjórnvalda vegna framkomu við tyrkneska karlalandsliðið í knattspyrnu þegar það kom til landsins í gærkvöldi. Krafist er aukinnar gæslu á leik Íslands og Tyrklands á morgun og þess að ekki verði slíkar tafir á heimleið liðsins. Þetta kemur fram á vef RÚV.

Samkvæmt leikmönnum liðsins tók það rúma þrjá klukkutíma að komast í gegnum flugvöllinn í gærkvöldi vegna vegabréfaeftirlits og öryggisleitar. Sam­kvæmt mbl var öryggisleitin vegna þess  að Tyrk­irn­ir flugu frá Konya, „óvottuðum“ flug­velli í heimalandi sínu.

Formleg kvörtun var gerð við íslensk stjórnvölg í gegnum sendiráð Tyrklands í Noregi  samkvæmt tyrknesku sjónvarpsstöðinni NTV.

Auglýsing

læk

Instagram