today-is-a-good-day

Vandræðaskáld senda frá sér lag sem lýsir sumrinu fullkomlega: „Í tjaldinu er einhvern veginn bæði of heitt og kalt”

Sesselía Ólafsdóttir og Vilhjálmur Bergmann Bragason mynda gríndúettinn Vandræðaskáld. Í dag sendu þau frá sér „þjóðhátíðarlagið” Útilegusár á Facebook síðu sinni. Sjáðu myndband við lagið hér að neðan.

Vandræðaskáld segjast hafa viljað fanga hina íslensku útilegu upplifun í einu lagi og það verður að segjast að það hafi tekist ansi vel.

„Hér kemur loksins þjóðhátíðarlagið sem enginn bað um. Í tilefni umræðunnar um veðurfar og ferðalög innanlands kemur hér sumarsmellurinn Útilegusár, þar sem við freistum þess að fanga hina íslensku útilegu upplifun í einu lagi!”

Sjá einnig: Vandræðaskáld semja lag til heiðurs Bjarna Ben: „Hvað með þó að pabb’ans hafi kvittað fyrir perra?“

Hlustaðu á lagið í spilaranum hér að neðan


Auglýsing

læk

Instagram