today-is-a-good-day

Vantar þig vinnu? Við erum að leita að nýjum og skemmtilegum pennum!

Nútíminn er að leita að ritstjóra, blaðamönnum og pennum. Ef að það leynist penni í þér eða eitthvað brennur sérstaklega á þér um málefni líðandi stundar, komandi stundar eða liðinnar stundar, þá skaltu ekki hika við að senda okkur fyrirspurn. Hvort sem um er að ræða fréttir, afþreyingarefni, pistla eða annað sem þér dettur í hug.

Ef þú hefur áhuga á því að skrifa fyrir Nútímann í einhverju formi endilega hafðu samband á nutiminn@nutiminn.is.

Æskilegt er að viðkomandi hafi:

  • Brennandi áhuga á fjölmiðlum og internetinu
  • Húmor og hæfni í að tala við fjölbreytt fólk og taka allskonar viðtöl
  • Vilja og getu til að hlaupa í verkefni með stuttum fyrirvara
  • Góð tök á tungumálinu

Og já, við viljum gefa ungu fólki tækifæri.

Auglýsing

læk

Instagram