Vitundarvakningin Krabbamein fer ekki í frí: „Þurfum að sýna skilning“

Fólk sem hefur þurft að nýta sér heilbrigðisþjónustu undanfarna daga getur hafa tekið eftir hurðamiðum og plakötum sem stendur á Krabbamein fer ekki í frí. Um er að ræða vitundarvakningu Krafts sem snýr að því að vekja athygli á því að þótt fólk fari í sumarfrí þá fer krabbamein ekki í frí.

„Okkar félagsmenn, sem eru bæði einstaklingar sem hafa greinst með krabbamein og aðstandendur, hafa oft talað um hægari og óskilvirkari þjónustu yfir sumartímann hjá heilbrigðisstofnunum og ákváðum við í Krafti að taka smá vinkil á þessu,“ segirHulda Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Krafts.

Vitundarvakningin ber nafnið Krabbamein fer ekki í frí og er Kraftur að auglýsa opnunartíma hinna ýmsu þjónustuaðila fyrir fólk sem greinist með krabbamein og aðstandendur þess. Það skiptir gífurlega miklu máli hvar maður getur sótt stuðning og ráðgjöf sem og hvernig málum er háttað upp á spítala yfir sumartímann. Efninu með opnunartímana hefur verið dreift víða og vonast Hulda til að það muni vekja athygli og geta reynst fólki gagnlegt.

„Við gerum okkur öll grein fyrir því og þurfum að sýna skilning að heilbrigðisstarfsfólk þarf líka að fara í sumarfrí og að sami fjöldi sjúklinga og verkefna fer þá á hendur færri. Oft getur reynst erfitt að fá fólk í afleysingar þar sem um sérhæfða þjónustu er að ræða. Okkur fannst því skipta máli að vekja máls á þessu en einnig sýna fram á þá þjónustu sem er í boði yfir sumartímann og hvert er hægt að leita. Við hvetjum fólk til að nýta sér þá þjónustu sem er í boði því það er fullt af góðu fólki sem er á vaktinni,“ segir Hulda.

Kraftur mun einnig standa fyrir viðburðum á hverjum miðvikudegi í júlí líka undir yfirskriftinni Krabbamein fer ekki í frí. Þessir viðburðir eru fyrir félagsmenn Krafts og er þar megin markmiðið að koma saman, njóta útivistar og líðandi stundar. Skrifstofa Krafts verður opin alla virka daga nema föstudaga í júlí þar sem hægt er að sækja stuðning og þjónustu. Einnig er opið í Ljósinu og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins fyrir ráðgjöf, stuðning og endurhæfingu.

Viðburðirnir Krabbamein fer ekki í frí eru auglýstir á vefsíðu Krafts undir sem og á Facebook síðu félagsins.

Auglýsing

læk

Instagram